
Forseti Íslands Herra Ólafur Ragnar Grímsson bauð forsvarsmönnum NLE og Forstjóra REVA í Evrópu til kaffisamsætis á Bessastöðum í tilefni af undirritun samninga fyrirtækjanna. Viðstaddur var sendiherra Indlands á Íslandi Sivaraman Swaminathan en undirritun samninga fór einmitt fram í Indverska sendiráðinu fyrr um daginn. Forsetinn er þekktur fyrir áhuga sinn á endurnýtanlegri orku og nýtingu innlendrar orku fyrir bílaflota landsmanna. Hefur forsetinn eins og flestir vita Lexus tvinn-bíl til umráða og hver veit nema næsti bíll á Bessastöðum verði rafbíll.