Gestir frá AMP Electric Vehicles

Fulltrúar frá AMP Electric Vehicles komu til landsins í byrjun mars mánaðar.  Þeir voru að kynna sér stöðuna á markaðnum á Íslandi og fóru í heimsóknir til fyrirtækja og stofnanna. Það sem vakti athygli þeirra var sú mikla jákvæðni sem er fyrir rafbílum hér á landi. Þeir gerðu sér ljósa grein fyrir þeim aðstæðum sem eru hérna með hliðsjón af uppbyggingu heildstæðs kerfis fyrir hleðslu rafbíla. Að þeirra mati eru einstaklega góðar aðstæður hér á landi fyrir rafbílavæðingu og fáir staðir sem þeir hafa komið á sem hafa jafna möguleika.  Að hafa aðgengi að slíku magni af „grænu“ rafmagni er einstakt og gefur landinu forskot sem ber að nýta.


AMP hefur þróað drifbúnað fyrir rafbíl og verður Chevrolet Equinox borgarjeppinn fyrsti bílinn sem fyrirtækið sendir frá sér. Eins og fram hefur komið gekk NLE frá samningum í haust um afhendingu á 1000 rafbílum frá AMP á næstu fimm árum. Eqiunox jeppinn fyrsta módelið af þeim bílum en fleiri módel eru væntanleg, bæði frá amerískum og evrópskum bílaframleiðendum. 


Sighvatur Lárusson, Sturla Sighvatsson, JD Stanley, Gísli Gíslason og Ronald Sobrero.

Þetta voru JD Stanley sem er Global Director of Sales and Marketing og Ronald Sobrero sérlegur ráðgjafi AMP. Þessir aðilar eru mjög reynslumiklir í bílaiðnaðinum í BNA. Ronald er með yfir 45 ára reynslu og var hann m.a. General Sales Manager hjá Chevrolet, en seinustu árin starfaði hann sem einn af æðstu mönnum General Motors.


Þess má geta að flestir innan AMP fyrirtækisins eru gamlir reynsluboltar úr bílaiðnaðinum og hafa starfað tugi ára hjá stóru bílaframleiðendunum.


AMP er dæmi um þau fjölmörgu fyrirtæki sem hafa lagt mikla fjármuni í þróun á drifbúnaði fyrir rafbíla á undanförnum árum. Þetta er nýr iðnaður sem er að ryðja sér til rúms og það sem þessi fyrirtæki gera er að þau kosta ekki til við þróun á bílunum sjálfum heldur eingöngu á drifbúnaðinum. 


Stóru bílaframleiðendurnir kosta til ótrúlegum upphæðum við hönnun og þróun sinna bíla og það sem fyrirtæki eins og AMP gera er að nýta sér það og einbeita sér að drifbúnaðinum. Með því móti fá þau plattform fyrir sinn drifbúnað og tegundum af rafbílum fjölgar á markaðnum.

9.3.2011