
Við undirritun umboðssamnings milli REVA Global og Northern Lights Energy í sendiráði Indlands. Viðstaddir voru talið frá vinstri Júlíus Hafstein Sendiherra, Gísli Gíslason NLE, Keith Johnston Forstjóri REVA Evrópu og S. Swaminathan sendiherra Indlands.
________________________________________________________________________________________________________ |
Northern Lights Energy hefur náð samkomulagi við REVA um sölu og markaðssetningu REVA rafbíla á Íslandi og í Færeyjum. Á bílasýningunni í Frankfurt í september síðastliðin frumsýndi REVA nýjan rafbíl, REVA NXR. Bíllinn er fjögurra sæta, þriggja dyra fjölskyldubíll sem hentar vel sem borgarbíll. Hámarkshraði er 104 km á klst. og hægt er að komast 160 km vegalengd á einni hleðslu. Boðið er uppá bæði hefðbundna hleðslu sem tekur 6-8 klst. og hraðhleðslu sem tekur um 90mín ef rafhlaðan er tóm. Hægt er að ná 40km. hleðslu á einungis 15 mínútum.
Á komandi árum mun REVA setja á markað eitt nýtt módel á ári og er næsta í röðinni tveggja sæta sportbíllinn NXG. NLE mun hefja sölu og markaðssetningu á nýja rafbílnum frá REVA um mitt næsta ár og fá viðskiptavinir fyrstu bílana afhenta í árslok en þeir verða þeir fyrstu sem REVA afhendir í Evrópu.
REVA hefur á undanförnum árum selt rafbíla í 26 löndum þó fjöldinn hafi ekki verið mikill hefur myndast mikil þekking. Fyrirtækið kynnti nýlega samstarfsverkefni með General Motors (GM) sem felst í því að útvega drifbúnað og rafstýrikerfi fyrir Chevrolet Spark nýjan rafbíl sem GM hyggst setja á markað árið 2011.
Bílarnir sem koma til landsins koma úr nýrri verksmiðju sem hefur framleiðslugetu upp á 30.000 rafbíla á ári, en verksmiðjan er ein sú umhverfisvænsta í heiminum og gengur að mestu fyrir sólarorku. NLE og REVA er að meta hagkvæmni þess að setja upp sambærilega samsetningarverksmiðju hér á landi, sem þjónusta mundi Evrópumarkað.
Auk þess að flytja inn nýjar gerðir rafbíla til landsins, undirbýr NLE breytingu á hluta núverandi bílaflota yfir í rafbíla. “Við vinnum með nokkrum aðilum í Danmörku og Finnlandi að því að auðvelda þessa breytingu á bílaflota Íslendinga til að flýta fyrir rafbílavæðingunni hér á landi. Markmiðið er að setja Ísland í fremstu röð þeirra landa sem nota endurnýjanlegar orkugjafa til að knýja fólksbílaflotann og hætta þar með notkun jarðefnaeldsneytis. Þannig sparast milljarðar króna fyrir samfélagið, að auki er dregið úr þeim 680.000 tonnum af koltvísýringi sem íslenski fólksbílaflotinn losar á hverju ári.