Ferð til Færeyja


Mynd RAX
Hópur frá NLE og samstarfsfyrirtækjum þess fór til Færeyja í nokkurra daga ferð. Ferðin var farin í boði Iðnaðarráðuneytis Færeyja og var tilgangur ferðarinnar að kynna áætlanir NLE um rafbílavæðingu Íslands og ræða mögulegt samstarf um rafbílavæðingu í Færeyjum. Ferðin er farin í framhaldi af viðræðum á milli NLE og ráðuneytisins á undanförnum mánuðum. Voru fyrirtæki og stofnanir heimsótt og ræddar þær lausnir sem NLE hefur verið að þróa hér á landi. Ekki er nokkur vafi á að uppsetning svipaðs kerfis og NLE stefnir á að setja upp hér á landi mundi henta vel í Færeyjum. Það má segja að helsti munur á þessum tveimur löndum hvað varðar rafbílavæðingu er annarsvegar sá að í Færeyjum eru töluvert styttri vegalengdir og heildar vegakerfið er mun styttra en hér á landi. Þetta auðveldar til muna innleiðingu rafbíla og auðveldar ákvarðanatöku fólks við kaup á bílum. Hinsvegar er sú staðreynd að í Færeyjum er um 45% allrar raforku framleitt í dag með olíu og þykir sumum ekki raunhæft að skipta bílaflota knúnum olíu út með rafbílum sem knúnir eru rafmagni sem framleitt er að miklu leyti með olíu. Hér á landi er hinsvegar nánast allt rafmagn framleitt með fallvatnsvirkjunum og jarðhita sem leiðir af sér að um er að ræða „græna“ orku. 
Færeyingar hafa á undanförnum árum skoðað ýmsa möguleika á framleiðslu rafmagns með öðrum hætti en með díseldrifnum rafstöðvum. Nægir þar að nefna mögulega nýtingu sjáfarfalla og vindorku en nú þegar eru nokkrar vindmillur í notkun í Færeyjum. Þetta er þó allt háð framþróun þessarar tækni og ekki hægt að skipta út yfir nótt þó vilji sé fyrir því. Það verður spennandi að sjá hvernig þessi mál þróast á komandi vikum og mánuðum. 
10.3.2010