Um miðjan maí var haldin í Noregi ráðstefnan og sýningin The International Electric Vehicle Symposium and Exposition eða EVS 24 , (24 stendur fyrir 24 skiptið sem ráðstefnan er haldin).
World Electric Vehicle Association (WEVA) hóf árið 1969 reglulegt ráðstefnu og sýningarhald víðsvegar um heiminn, síðast í Kaliforníu, nú í Noregi og næsta ráðstefna verður haldin í Shanghai, Kína. EVS 24 sýningin í Noregi samanstóð af fjölda athygliverðra sýningabása, uppákomum og áhugaverðum fyrirlestrum. Þar á meðal fyrirlesara var Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. Hann er þekktur fyrir áhuga sinn á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda til framleiðslu á vistvænni orku.
EVS ráðstefnan er vettvangur fyrir háskólasamfélagið, opinbera aðila og fagaðila í iðnaði tengdum rafknúnum farartækjum.
|
|
Gísli Gíslason NLE ræddi 2012 verkefnið við Albert prins af Monakó og sýndi hann því mikinn áhuga.
|
Það voru um: 2.000 þátttakendur í sýningunni frá 45 löndum, 350 fyrirlestrar / kynningar og að sýningarhaldi stóðu 100 aðilar frá 40 löndum.
Samdóma álit flestra er að vel hafi tekist til með ráðstefnuna sem haldin var á fertugsafmæli samtakana. Mikil gróska hefur átt sér stað á síðustu árum í þróun rafknúinna farartækja og tengdum búnaði.
Samhliða þessu var haldið alþjóðlegt rallí ætlað rafbílum, tengil tvinnbílum og vetnisbílum. Akstursleiðin sem varð fyrir valinu liggur frá Ósló til Stavanger í Noregi, þar sem EVS 24 sýningin er haldin.
Nokkrir Þekktir einstaklingar voru meðal þátttakenda, mætti nefna Hákon Noregs prins og prins Albert II af Mónakó. Tækifærið var notað og 2012 verkefnið kynnt fyrir Albert prins af Mónakó.
|