E-Range frá Liberty Electric Cars

 Í nóvemberhefti Motor, bílablaði Finans Avisen í Noregi, var umfjöllun um rafbílinn E-RANGE frá breska yrirtækinu Liberty Electric Cars. Um er að ræða umbreyttan Range Rover frá Liberty og voru blaðamennirnir mjög hrifnir af bílnum. Þeir kölluðu hann „VERDENS BESTE ELBIL“ og þarf engan að undra þar sem bíllinn er hreint frábær.

Bíllinn er að öllu leyti eins og hefðbundinn Range Rover í útliti að innan sem utan. Það er ekki fyrr en við akstur sem munurinn kemur í ljós. Nánast hljóðlaus, með fjóra öfluga rafmótora og rafhlöðupakka sem skilar allt að 320 km vegalengd á einni hleðslu.

Í dómi norsku blaðamannanna fékk E-RANGE 9,4 af 10 mögulegum og er það frábær dómur um þennan 2,9 tonna rafjeppa sem er 7 sek. í hundraðið. NLE hefur samið við Liberty um sölu á þessum bílum.




     
7.1.2011