Brewster Kahle heimsækir NLE

Einn af þeim erlendu fjárfestunum sem koma að fjárfestingarsjóðnum Neistar, er  Brewster Kahle, tölvunarfræðingur sem oft kallaður „the Internet Librarian“.  Hann er mjög sérstæður maður á margan hátt og er stóra markmiðið í hans lífi að koma öllum bókmenntum heimsins á netið og gera aðgengilegar almenningi, ókeypis, sjá nánar hér.  Í þeim tilgangi hefur hann m.a. stofnað til samstarfs við aðstandendur IMMI verkefnisins hér á landi en IMMI stendur fyrir Icelandic Modern Media Initiative sjá nánar hér.  „IMMI á að vera sverð og skjöldur upplýsinga- og málfrelsis“ að sögn Birgittu Jónsdóttur þingkonu Hreyfingarinnar.


Sighvatur, Gísli og Sturla frá NLE ásamt Brewster og June samstarfskonu hans.

Eins og fyrr segir er Brewster Kahle einn af erlendu fjárfestunum í Neistum sem ætlað er að fjárfesta í innlendum verkefnum hverskonar. En Brewster er ekki bara fjárfestir heldur er hann það sem kallað hefur verið „raðfrumkvöðull“ enda komið að stofnun fjölda fyrirtækja.  Við eigum að fagna öllum þeim sem vilja fjárfesta hér á landi og gera okkar til að laða slíka aðila að. Við verðum hinsvegar alltaf að minnast þess að það er ekki bara fjármagnið sem við viljum fá heldur líka fólkið á bak við fjármagnið. Féð kemur ekki af sjálfu sér. Á bakvið fjármagnið eru alltaf einstaklingar sem síðan taka ákvarðanirnar um hvernig því er varið.

Það er alloft talað um mikilvægi þess að fá erlent fjármagn hingað til lands en svo gleymist í umræðunni hvað þarf, til að það geti gerst.

Brewster Kahle kom til NLE á vegum Neista til að kynna sér út á hvað verkefni fyrirtækisins ganga. En hann er einn af fjórum aðilum úr Neista hópnum, sem komið hafa til NLE sérstaklega til að kynna sér Þjóðarátak um rafbílavæðingu Íslands.

17.2.2011