Bílasýningin í Frankfurt
Útsendarar NLE voru á hinni árlegu Frankfurt Motor Show bílasýningu og skoðuðu hvaða framtíðarlínur bílaframleiðendur eru að leggja í framleiðslu sinni. Áberandi var hvað margir framleiðendur voru að kynna rafbíla og þá annað hvort sem hugmyndabíla eða rafbíla sem koma til framleiðslu á allra næstu árum. Sumir kynntu bíla sem þegar koma í framleiðslu á næsta ári og aðrir á 2011 og næstu árum þar á eftir. Hér gefur að líta nokkrar myndir af því sem í boði var.
20.9.2009