„Umhverfislögga“ með í þjóðarátakinu !

Hluti þeirra aðila sem vilja leggja þjóðarátakinu lið eru félagasamtök og aðilar sem láta sig neytendamál og náttúru varða. Eitt af þeim er Náttúran.is er upplýsingaveita, fréttamiðill og söluaðili fyrir allt sem tengist náttúru og umhverfi á einhvern hátt.


Sighvatur Lárusson fulltrúi þjóðarátaksins og Guðrún Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Náttúran er ehf. innsigla samstarfið.

Náttúran.is er sjálfstætt starfandi vefsetur með aðaláherslu á að þjóna hinum almenna neytanda með áreiðanlegum upplýsingum um allt sem snertir umhverfi okkar og heilsu. Í raun hafa þau allt undir í þeim efnum, nærumhverfi, náttúrana sjálfa sem og heimilið. Einnig er neyslan og fyrirtækin sem upplýstir borgarar vilja fá til aðstoðar við að skapa sjálfbæra framtíð "undir eftirliti" hjá þeim.

Jafnt fyrirtækjum sem félagasamtökum og almenningi er boðið að nýta sér þennan óháða vettvang til að koma upplýsingum á framfæri og eiga skoðanaskipti og er ekki annar sambærilegur vefur til hér á landi.

Náttúran.is er ætlað að vera náttúrutenging nútímamannsins og „umhverfislögga“ í jákvæðum skilningi.

Það er ánægjulegt og hvetjandi að finna fyrir því að aðilar sem láta sig neytendamál og verndun náttúrunnar varða, skuli vilja leggja sitt að mörkum með þátttöku í þjóðarátakinu. 

Tenging á síðuna er hér 

3.3.2011