VOLCANIC BATTERIES
NLE hefur stofnað undirbúningsfélag fyrir stofnun og rekstur liþíum rafhlöðuverksmiðju. Er það gert í samstarfi við aðila í Finnlandi og Kína.
Undirbúningur hefur staðið um tíma og eru viðræður við innlenda aðila að hefjast varðandi staðsetningu, orku- og efnisöflun og tækniþekkingu. Slík verksmiðja mun hafa veruleg áhrif á íslenskt samfélag þar sem möguleiki er á um 750 störfum og mikilli orkunýtingu í formi raforku og jarðgufu. Framleiðsluferlið krefst sérhæfs vinnuafls og tækniþekkingar sem byggð verður upp með aðstoð frá kínverska rafhlöðuframleiðanda.

Verksmiðjan af þessari stærð gæti verið reist í  5 skrefum og er heildarorkuþörf miðað við full afköst áætluð um 250Mw. Framleiddar yrðu margskonar tegundir rafhlaðna en megin áhersla yrði lögð á rafhlöður ætlaðar fyrir rafknúinn samgöngutæki. Sérstaðan rafhlöðuframleiðslu hér á landi verður nýting jarðgufu við framleiðsluna. 

Verkefnið mun skapa störf, nýta innlenda tækniþekkingu, innlenda álframleiðslu, innlenda orku og stuðla að minnkun mengunar.

Jafnframt hefur verið stofnað dótturfélag í Finnlandi sem heitir Volcanic Finland Oy og mun það félag byggja smærri verksmiðju í einum stærsta iðngarði Finnlands, Kokola Industry Park í smábænum Kokola. Þar verða þróaðar nýjar aðferðir við framleiðslu rafhlaðna og er stefnt að nánu samstarfi við fjölmarga aðila. Þaðan mun sérhæfð þekking efna og eðlisfræðinga koma vel að notum enda eru þar fjölmörg fyrirtæki með sérfræðinga  sem sérhæfðir eru í efnaiðnaði. Skammt frá Kokola er stærsta liþíum náma Evrópu staðsett og verður nálægð hennar nýtt við þróun og framleiðslu á nýjum tegundum liþíum rafhlaðna. Verið er að rannsaka nýjar aðferðir við vinnslu liþíum úr þessari námu hjá Chydenius University í Kokola sem er í samstarfi við Volcanic.

Nánari upplýsingar veitir Sighvatur Lárusson í síma 864 4615 eða netfanginu sighvatur@nle.is