HBT INTERNATIONAL
HBT International vinnur að rannsóknum, þróun og framleiðslu á orkusparandi lausnum fyrir stórnotendur í orkufrekum iðnaði. Fyrirtækið, sem staðsett er á frumkvöðlasetri Keilis í Reykjanesbæ, byggir framleiðslu sína á áratuga þróunarvinnu færustu vísindamanna og sérfræðinga á sviði rafmagns- og vélaverkfræði.

HBT var nýverið að hefja framleiðslu og sölu á Rafstillinum. Rafstillirinn vinnur gegn launafli, viðnámi og truflunum í rafkerfum véla. Rafstillirinn var upphaflega hannaður til notkunar um borð í skipum til að leiðrétta truflanir og draga úr álagi á rafölum. Töluverð reynsla er komin á notkun Rafstillisins um borð í skipum en búnaðurinn var settur upp í fjölveiðiskipinu Gnúpi GK-11, fyrst skipa, árið 2003.
    
 






Með sífelldri þróun og endurbótum, náði búnaðurinn sinni endanlegri mynd árið 2005 og hefur verið í stanslausri notkun um borð síðan. Rafstillirinn vinnur jafn vel á landi sem og á sjó og hefur verið m.a. sett upp í frystihúsi Þórsbergs hf. í Tálknafirði með ótrúlegum árangri.

Ávinningar af notkun Rafstillisins eru fjölmargir. Hæst ber að nefna verulegan eldsneytissparnað auk minni mengunar úr útblæstri véla. Búnaðurinn dregur verulega úr  þeim amper-fjölda sem að rafkerfi keyra á og þar með rafmagnsnotkun. Því til viðbótar hefur verið sýnt fram á að bilanatíðni í tækjum og búnaði hefur hríðfallið auk þess sem virkni þess sama búnaðar hefur batnað. Hitamyndun og raftruflanir af ýmsum toga heyra næst sögunni til.

HBT vinnur einnig að rannsóknum á rafgreiningartækni. Þessi tækni, sem langt er á veg komin, framleiðir vetnisgas sem “blætt” er inn í brunahólf véla. Þessi “blæðing” skilar sér í hreinni og hraðari bruna þess eldsneytis sem notað er. Útkoman er minni og betri eldsneytisnotkun auk þess að draga verulega úr mengandi efnasamböndum í útblæstri véla, og í sumum tilvikum, nær að eyða algjörlega vissum eitruðum efnasamböndum. Rannsóknir og þróun standa enn yfir.

HBT opnar senn söluskrifstofur í Belgíu og Noregi. Áætlanir eru uppi um að opna fleiri skrifstofur í Evrópu sem og Indónesíu og Suður-Ameríku. Á mjög skömmum tíma má gera ráð fyrir því að HBT verði leiðandi afl í sölu og þróun á orkusparandi búnaði í heiminum.

NLE og HBT vinna náið að þróun Rafstillisins fyrir notkun í rafbílavæðingu samgangna.

Sjá nánar á heimasíðu fyrirtækisins www.hybotech.com