ENDURNÝJUN VERÐMÆTA
Einn af þeim þáttum sem talin er mikilvægur til að rafbílavæðing geti átt sér stað fljótt og örugglega er endurnýjun þeirra verðmæta sem liggja í núverandi bílaflota. Northern Lights energy er í viðræðum við erlenda aðila um að koma upp þekkingu til að breyta bensín og díselbílum yfir í rafbíla og að það verði gert hér á landi. Á árinu 2009 komu sérfræðingar frá Danmörku, Finnlandi og Bandaríkjunum til að ræða þá möguleika sem í boði eru og miðla af þekkingu sinni. Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu við tvö fyrirtæki sem munu deila þessari þekkingu og veltur það í raun á vilja Íslendinga fyrir því að breyta núverandi flota hvort árangur náist.

Tæknilega er ekkert því til fyrirstöðu að breyta flestum bílum á götunum en fjárhagslega eru sum módel betur til þess fallin önnur. Hugmyndin felst í því að nota staðlaðar útgáfur af breytingasettum sem aðlagaðar verða fyrir algengustu bílategundirnar á markaðnum. Líftími bíla getur orðið mun lengri ef bíl er breytt í rafbíl en hafa skal í huga að sumar tegundir henta illa fyrir breytingar og verður því kostnaður of mikill.

Jafnframt er möguleiki á að flytja inn nýja bíla og breyta þeim og eru fyrirtæki í Evrópu sem hafa margra ára reynslu af því. Hafi einhver áhuga á að fara út í breytingar á bílum og gera það á stærri skala þá endilega sendið okkur línu hér, eða hringið í síma 490 9000 – 864 4615.